Stærð hunda er gríðarlega fjölbreytileg eftir afbrigðum. chihuahua hundar eru minnsta afbrigðið en þeir verða yfirleitt ekki nema um 15-23 cm á herðakamb og vega um 1-6 kg. Pomeraria hundar eru annað smávaxið afbrigði en þeir verða um 18-30 cm á herðakamb og um 1-3 kg að þyngd. Aftur á móti verður stóri dani yfir 90 cm á herðakamb og getur vegið allt að 80 kg. St. Bernharðshundur getur orðið allt að 85-90 cm á herðakamb en öllu þyngri en stóri dani eða allt að 135 kg.